Fyrsta björgunin var hrein tilviljun
„Þær hefðu sjálfsagt setið þarna fastar lengi ef við hefðum ekki komið til,“ segir Sigurður Konráðsson félagi í HSSK um það sem kalla má fyrstu björgun hjálparsveitarinnar. Félagar sveitarinnar voru í æfingarferð við Hagavatn þegar þeir keyrðu fram á erlenda ferðamenn, fjórar bandarískar konur, sem sátu fastar í bíl sínum á Kjalvegi, en þær höfðu villst af leið eftir skoðunarferð að Gullfossi. Sigurður Konráðsson (t.v.) og Bjarni Þormóðsson (t.h.) rifjuðu upp fyrstu björgunina. Á milli þeirra félagar er Einar Stefánsson, sem einnig er stofnfélagi. Myndina tók Sigurður Ólafur Sigurðsson sumarið 2019 í afmælisferð í Þrist. [...]
You must be logged in to post a comment.